1.1.2008 | 18:25
Í lok skákársins 2007
Nú þegar nýtt ár er gengið í garð er loksins komin tími til þess að setjast við skriftir að nýju! Ég hafði jú hugsað mér að skrifa á síðuna öðru hverju og fjalla um skákina og allt hitt sem er að gerast í lífinu.
Í desember stóð Hellir fyrir sínu árlega jólapakkamóti og verð ég að viðurkenna að þegar dagsetningin 22. desember varð fyrir valinu fékk ég hnút í magann þar sem ég gerði ráð fyrir að flestir væru orðnir í spreng með jólaundirbúning. Það var því ekkert annað en að spýta í lófana því ég reyndist þurfa að sinna hjúkrunarstörfum heimafyrir langt fram yfir miðjan mánuðinn. Jóhanna Björg steinlá í tyrkneskri matareitrun sem olli því að hún varð að leggjast inn á spítala í miðjum ófögnuðinum sem fylgdi því fékk hún streptókokkahálsbólgu sem lagðist á allann systrahópinn. Þar með var ég ráðinn í fullt starf sem hjúkrunarfræðingur og var með fasta lyfjagjafatíma þrisvar á dag fyrir fjögur börn! Þar sem Kaupþing hefur notið nærveru flestra vökustunda föðursins ársins 2007 varð því að skipuleggja jólaundirbúning af kostgæfni og var allt orðið tilbúið þegar Hjördís Hjörvarsmóðir mætti í Skjólsalina með tugi jólagjafa sem þurfti að pakka inn þann 21. desember. Vegna frábærra innpökkunarhæfileika okkar mæðranna tók aðeins 3 klukkustundir að pakka inn rúmlega 70 pökkum og það alveg ljómandi vel. Að sjálfsögðu náðum við að borða og slúðra inn á milli :) Að morgni jólapakkamóts var það föngulegur hópur Hellis manna og kvenna sem mætti í Ráðhúsið til undirbúnings og get ég staðfest að kvennahlutinn gaf ekkert eftir þegar kom að því að bera borð og stóla í salinn. Klukkan hálf eitt fóru börnin að streyma inn í salinn uppfull af spennu og eftirvæntingu enda stutt til jólanna og mótið því prýðileg afþreying til þess að stytta biðina.
Á annað hundrað börn tóku þátt og gekk allt snuðrulaust fyrir sig og allar áætlanir stóðust. Ég tók í fyrsta skipti þátt í móti sem aðstoðarkona skákstjóra í flokkinum 1997-8 og samkvæmt Róberti stóð ég mig ljómandi vel. Það fór þá ekki svo að ég lærði ekki eitthvað nytsamlegt í skákinni þetta ár. Það var mikil gleði og eftirvænting við verðlaunaafhendinguna og man ég varla eftir eins mikilli spennu á þessu móti eins og var þegar stóru vinningarnir voru dregnir út í lokin. Þess má líka geta að dæturnar tvær sem eru taflfærar stóðu sig með slíkri prýði að þær tóku báðar á móti 1. verðlaunum í sínum flokkum eins og þær hafa gert undanfarin ár. Hildur Berglind var að taka þátt í þriðja sinn og hefur í öll skiptin unnið fyrsta sæti. Þess má geta að hún vann 4/5 og tapaði einungis fyrir stráknum sem vann flokkinn. Jóhanna vann sinn flokk í heild af sinni einstöku snilli eins og mamman bjóst við af henni .
Friðriksmótið fór fram sl. laugardag og var fjölmenni mætt til leiks í Landsbankanum. Þó nokkrir ungir ofurhugar öttu kappi við þá eldri og reyndari sem ávallt er þeim til styrks og hvatningar. Þetta er í fyrsta skipti sem ég er viðstödd allan tímann á svona "stórmeistara" móti. Lærifaðir minn í skákstjórn tók á móti mér með kossum en Hjördís benti mér á að Róbert kyssti allar fallegar konur í hvert sinn sem hann hittir þær. Það er fullkomlega sársaukalaust af minni hálfu enda alltaf gaman þegar maður fær athygli svona seint á fertugsaldrinum!! Það var því augljóst að ég varð líka að halda með honum á mótinu og þar með komnir amk 6 manns sem ég hélt með auk frumburðarins. Jóhanna Björg lauk mótinu með 5 góðum vinningum en ætlar að sjálfsögðu að gera enn betur á næsta ári. Elsa María stóð sig frábærlega og vann kvennaflokkinn með 7 vinningum sem hún getur svo sannarlega verið stolt af. Í mótinu var mér hins vegar réttilega bent á af forseta skáksambandsins að nú væri líklega komin tími til þess að ég færi sjálf að tefla þar sem ég er sjálfsagt viðstödd fleiri skákmót en flestir aðrir sem þarna voru. Ég held reyndar að ég þyrfti að taka einvígi um þann titil við Hjördísi Hjörvarsmóður því hún er einnig mjög virkur áhorfandi
Það var svo í nótt sem gesti bar að garði og höfðu orð á því hve fjölskyldan hefði tekið sig vel út í annálnum. Ha!! Hvaða annál? Hváðum við öll í kór enda ekkert okkar gefið sér tíma til sjónvarpsgláps síðasta dag ársins. Jú Rúv hafði gert sér lítið fyrir og birt viðtalið við Hildi Berglindi og móðurina frá því í nóvember. Þrátt fyrir að það geti nú áreiðanlega talist heiður að ná í Íþróttaannál ársins 2007 þá kom það mér óneitanlega á óvart að þeir skildu skella inn viðtalinu við stoltu móðurina frekar en að nefna það í júlíhlutanum að Salaskóli hefði hampað heimsmeistaratitli í sumar! Já margt er nú skrýtið í kýrhausnum og ég náð í annálinn sem verður að teljast býsna kítlandi þar sem ég er lítið áhugasöm almennt um íþróttir og horfi aldrei á íþróttaþætti. Ekki svo að skilja að ég hafi eitthvað á móti þeim - alls ekki. Nenni bara ekki að horfa á karlmenn í stuttbuxum elta leðurtuðru og blóta! Líkamsræktin á hins vegar hug minn og stefni ég ótrauð áfram á enn betra líkamlegt form á nýju skákári 2008.
Ég vil þakka öllum fyrir ánægjulegt skákár, skemmtilega samveru og vonast til þess að við eigum enn betra ár framundan bæði í leik og starfi.
Með kveðju úr Skjólsölum
Edda
Um bloggið
Edda Sveinsdóttir
Tenglar
Skáktenglar
- Skákfréttir
- Skáksamband Íslands Heimasíða Skáksambands Íslands
- Taflfélagið Hellir Heimasíða Taflfélagsins Hellis
- Salaskólaskák Heimasíða Salaskóla
- Taflfélag Garðabæjar Heimasíða Taflfélags Garðabæjar
- Skákdeild Fjölnis Heimasíða Skákdeildar Fjölnis
- Skákskóli Íslands Heimasíða Skákskóla Íslands
- FIDE Heimasíða Alþjóðaskáksambandsins
- The week in chess
- Heimasíða heimsmeistaramótsins
Líkamsræktin
- Crossfitþjálfun crossfit.com
- CrossFit í Sporthúsinu CrossFit
- Þjálfun.is Þjálfun.is
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (8.6.): 0
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 2
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 2
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.