11.2.2008 | 12:54
Allt frábæra fólkið í lífinu
Ég á ógrynni af frábærum vinum og kunningjum svo ekki sé minnst á alla stórfjölskylduna sem ég er svo rík af. Mér þykir líka óendanlega vænt um alla mína vini og ættingja og líka þá sem eru mér bara sem kunningjar. Af einhverjum orsökum kynnist ég afar mikið af fólki og má segja að það sé hvert öðru betra og skemmtilegra. Það er nú líka staðreynd að ég er mikil félagsvera og hef gaman af alls kyns mannfögnuðum. Jafnvel því að sitja með sama fólkinu helgi eftir helgi á skákmótum því þar hef ég svo sannarlega kynnst fyrsta flokks foreldrum, börnum, skákfólki og öðru áhugafólki.
Þakklæti er það sem ég er að reyna koma frá mér núna! Ég er svo þakklát fyrir ykkur öll því öll skiptið þið máli í lífi mínu á einhvern hátt. Á laugardagsmorgun hitti ég eina af þessum einstöku vinum sem ég á. Það er hún Rut mín, hjúkka, sölufulltrúi og nuddari. Rut er frábær í einu og öllu. Við eigum okkar skemmtilegustu stundir þegar hún kvelur mig af hjartans list á nuddbekknum sínum. Stundir sem ég mun minnast í ævisögu minni þegar ég verð orðin borgarstjóri í Kópavogi! Rut er ein af þessum konum sem ég hef án efa secretað til mín, ómeðvitað gegnum allt lífið. Hún er stelpan sem átti heima í Selásnum þegar ég var strumpur í Hraunbænum og var með systur hennar í bekk. Hún er ein sú fyrsta sem ég hitti þegar ég byrjaði í hjúkrun á síðustu öld og hún fór fljótlega að vinna á sama vettvangi og ég í lyfjageiranum. Ég man þegar hún nuddaði axlirnar á mér í fyrsta sinn. Jebb þetta hljómar eins og ástarsaga!!! En það var einmitt á rómantískum stað í miðju Bláa Lónsins. Rut þjarkaði mér gegnum tvær meðgöngur. Í gær vorum við að rifja upp þegar hún þurfti að nýta fyrstu 30 mínúturnar af nuddtímanum til þess að komast í gegnum 100 metra vökvalag mitt, bjúginn þegar ég var 30 kílóum þyngri en ég er í dag. Við Rut höfum átt okkar stundi - svo sannarlega! Elsku Rut TAKK fyrir að vera til.
Eitt finnst mér merkilegt og það er hvernig leiðir margra vina minna hafa tengst mínu lífi í gegnum árin án þess að við höfum náð að kynnast fyrr en jafnvel nú í seinni tíð. Eva Björk er ein af þeim sem hefur alltaf verið í kringum mig frá því ég var 4 ára gömul í Hvassaleitinu, 6 ára í Ísaksskóla, í Hraunbænum, Í MR þegar ég var í Verzló, í hjúkrun og svo urðum við vinkonur á þessari öld þegar hún var ráðin inn í Lyfjaumboð I með mér og Jóni.
Ég er viss um að þrátt fyrir að við getum valið okkur vini þá eru alltaf einhverjir þarna úti sem eru ætlaðir okkur eða hafa kannski bara valið okkur!
Um bloggið
Edda Sveinsdóttir
Tenglar
Skáktenglar
- Skákfréttir
- Skáksamband Íslands Heimasíða Skáksambands Íslands
- Taflfélagið Hellir Heimasíða Taflfélagsins Hellis
- Salaskólaskák Heimasíða Salaskóla
- Taflfélag Garðabæjar Heimasíða Taflfélags Garðabæjar
- Skákdeild Fjölnis Heimasíða Skákdeildar Fjölnis
- Skákskóli Íslands Heimasíða Skákskóla Íslands
- FIDE Heimasíða Alþjóðaskáksambandsins
- The week in chess
- Heimasíða heimsmeistaramótsins
Líkamsræktin
- Crossfitþjálfun crossfit.com
- CrossFit í Sporthúsinu CrossFit
- Þjálfun.is Þjálfun.is
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (9.6.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 2
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 2
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.