28.3.2008 | 16:48
Að fjárfesta í hlaupaskóm
Þrátt fyrir að hafa staðið mig stórkostlega að undanförnu, verið geðveikt dugleg að æfa og gera allt hitt sem þarf að gera líka virðist sem tíminn nái ekki alveg að standa í stað - eitthvað er þetta nú skrítið bull! OK er búin að standa mig geðveikt vel og æft eins og lúní alla vikuna og búin bæta tímann í hverri æfingu á fætur annarri eins og markmiðið er . Í nótt mætti ég svo á æfingu með hópnum kl. 6:30 og tók smá hamangang í morgunsárið endaði svo æfinguna í bekkpressunni með stelpunum þar sem ég lyfti tvisvar sinnum 50kg. með guðlegri aðstoð (eða kannski andlegri.....). Reynir lét sér það ekki duga heldur hengdi hann mig upp á handklæði og fannst tilvalið að þar skildi ég hanga þar til ég gæti hisjað mig upp nokkrum sinnum. Til að útskýra það nánar heldur hann því fram að við (mannfólkið) getum allt sem við ætlum okkur, við þurfum bara að vilja það og stundum þurfum við líka að trúa því að það sé ógeðslegur brún/grænn krókódíll með opinn skölltinn í rassinum á okkur. Þannig að auðvitað gat ég hisjað mig upp og haldið lífi.
Þegar heim var komið þurfti að moka öldungunum út úr húsinu en Elín Edda fékk frí í leikskólanum þar sem hitamælirinn sýndi nokkrar óæskilegar kommur ofan við 37 gráðurnar. Það kom ekki að sök þar sem hún gat leikið við Þórdísi með ég nýtti adrenalínið og allt efedrínið sem losnaði á æfingunni um nóttina og hóf heimilisþrif. Að þessu sinni voru þau ekki í tímatöku en þeim skildi lokið fyrir kl. 12 svo hægt væri að nærast og kannski eiga rólega stund til tvö. Það tókst EKKI. Þó ekki vegna þess að ég væri svona móð eða hægvirk heldur vegna þess að hingað kom smiður sem vildi endilega taka mál og fleira fyrir fínesringum sem komin er tími til að klára. Þórdís sofnaði því rétt um 13 svo ég rétt náði að skúra áður en ég þurfti að vekja hana kl. 14. Þá kom skríllinn heim úr skólanum með hungurverki sem hæfir ljóta krókódílnum hér að ofan svo vissara var að næra stóðina. Að svo búnu var hópurinn dressaður í útifötin og smalað út í bíl. Nú skildi eyða peningum eða öllu heldur strauja kortið hans Tomma. Skynsemin segir mér að nú sé komin tími á alvöru hlaupaskó. Þar sem Gunnar bæjarstjóri borgar mér aðeins 35.000 á mánuði fyrir að vera ábyrg móðir og nýta mér ekki dagvistunarmöguleika Kópavogs, þá er ljóst að kaup á skóm fyrir 16.990 er heilmikil fjárfesting og skildi því vanda valið. Orkuhúsið lumar á ljómandi fínu og bráðefnilegu starfsfólki sem virðist vita hvað það er að gera. Stúlkan grandskoðaði skóræksnin sem ég var í og hristi eitthvað hausin yfir því að ég skuli staulast um á háum hælum. Hún var ekki í nokkrum vafa þegar hún sagði mér að ég þyrfti hlaupaskó með sérstökum ytri styrk Asics nimbus 9. Mátaði þá tíu sinnum og svo aftur og rétti henni kortið. Nú er ég að drepast úr spenning eftir næstu æfingu sem verður líklega ekki fyrr en á mánudag. En hver veit, kannski get ég ekki beðið lengur en til sunnudags!
Þó ég hafi eytt allri þessari ósköp í skó sem ekki eru skvísuskór þá var ég ekki döpur en pínu hissa á íslensku verðlagi. Gleymdi því hins vegar algjörlega því rétt í þessu hringdi hingað heim maður sem kynnti sig og sagðist hjóla um alla borgina og lýsti því í stuttu máli. Það hvaflaði að mér að hann væri að safna styrkjum fyrir eitthvað en þegar hann fór að segja mér að hann hefði verið að hjóla milli lífs og dauða, þe. í Fossvoginum við kirkjugarðinn og Suðurhlíðarnar, og þar hefði hann komið auga á eitthvað bleikt inni á milli trjána, fór ég að hlusta nánar. Af forvitni kíkti hann frekar á þetta bleika sem reyndist vera barnahúfa sem á var letrað Þórdís Agla!!!! Ó mæ god! Jebb, bleika húfan sem ég keypti á örverpið og lét merkja er eina húfan sem ég hef nokkurn tímann týnt á lífsleiðinni og hvað hún var að gera á þessum stað er mér gjörsamlega fyrirmunað að skilja enda á ég aldrei leið um þessar slóðir, amk. ekki með barnið! En þessi elskulegi maður er víst á leiðinni í sund með fjölskylduna og fannst tilvalið að skella sér í Salalaugina (þá vitanlega á bíl) og ætlar að heimsækja Þórdísi Öglu og afhenda henni húfuna.
Um bloggið
Edda Sveinsdóttir
Tenglar
Skáktenglar
- Skákfréttir
- Skáksamband Íslands Heimasíða Skáksambands Íslands
- Taflfélagið Hellir Heimasíða Taflfélagsins Hellis
- Salaskólaskák Heimasíða Salaskóla
- Taflfélag Garðabæjar Heimasíða Taflfélags Garðabæjar
- Skákdeild Fjölnis Heimasíða Skákdeildar Fjölnis
- Skákskóli Íslands Heimasíða Skákskóla Íslands
- FIDE Heimasíða Alþjóðaskáksambandsins
- The week in chess
- Heimasíða heimsmeistaramótsins
Líkamsræktin
- Crossfitþjálfun crossfit.com
- CrossFit í Sporthúsinu CrossFit
- Þjálfun.is Þjálfun.is
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (8.6.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 2
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 2
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Hæ. Þarf vart að minna á að þið hafið undanfarið verið fastagestir í jarðaförum og kistulagningum... Svo hefur verið svolítið rok undanfarið og ég hef einnig upplifað undarlega hluti skila sér til mín á þann hátt... jafnvel því sem hefur verið týnt lengi... bíð enn eftir einni lopapeysu og einum cintamani stakk sem ég hef glatað á óskiljanlegan hátt. Svo kom Siggi með appelsínugula stakkinn minn heim í gær... sem ég hafði óvart skilið eftir á vinnustaðnum hans þegar ég stökk inn á salernið.... úps svona gerist þetta.
Hlakka til að sjá þig spranga um á nýju skónum - vonandi gera þeir það gagn sem þörf er á sökum óheyrilegrar verðlagningar...!
Hildur klappstýra :o) (IP-tala skráð) 29.3.2008 kl. 16:00
Já maður má ekkert skilja eftir í bíl og opna hurðina svo án þess að eiga það á hættu að það fjúki út um hana! Góður að hafa upp á ykkur! Hlakka til að heyra hvernig nýju skórnir reynast. Ekki viss um að ég vilji heyra sérfræðingana segja álit sitt á mínum skóm sem bera með sér að vera orðnir reynslumiklir! Fer að safna fyrir nýjum sem maður gerir ekki á einum degi og ekki er nú borgarstjórinn svo elskulegur að borga mér neitt fyrir að vera heima eftir fæðingarorlofið:s
kv. Ásta
Ásta (IP-tala skráð) 31.3.2008 kl. 15:51
Sko jáh skórnir leyna á sér því síðustu 4 pör sem ég hef átt hafa verið nánast eins og nýjir þegar ég hef lagt þeim, þe. í útliti því þeir hafa aðeins verið nýttir innanhúss og rétt um ár í senn og reyndar hef ég bara notað síðustu skóna síðan í ca októberlok. Þessir síðustu hentuðu einfaldlega ekki í hlaup. Nýju skórnir voru prufukeyrðir í morgun með ágætis árangri en það reynir á næstu daga.
Borgastjóra greyið er í kelmmu með allar þessar rauðsokkur í Reykjavík sem halda því fram að konur velji frekar að vera heima fyrir 35þúsund á mánuði en að vinna. Það er alrangt. Kona velur það að vera heima ef hún hefur áhuga og efni á því. Það er alveg ljóst að 35.000 eru aum skipti fyrir minn fyrri karríer! Þórdís fer á leikskóla um leið og hún kemst að og falla þá niður þessar greiðslur. Að halda því fram að konur geti ekki tekið upplýsta, skynsamlega ákvörðun út frá eigin forsendum er heimska og gerir lítið úr þessum rauðsokkukerlingum sem halda öðru fram. Þessi umræða er frekar til þess fallinn að láta konur sem velja það að vera heima fá samviskubit yfir því að hafa tekið þessa "heimsulegu" ákvörðun - og hananú!
Edda (IP-tala skráð) 31.3.2008 kl. 16:54
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.