Eftir nákvæmlega tvær vikur mun ég skála

Jæja, þessi helgi er ekkert öðruvísi en aðrar, þ.e. skákmót. Í dag fór ég með Jóhönnu og Hildi á stúlknamót Reykjavíkur en titilinn getur aðeins unnið stúlka úr Reykjavík eins og gefur að skilja. Hallgerður Helga vann mótið með 6/7 vinningum en hún tapaði aðeins fyrir Jóhönnu sem varð í 2-3 með 5,5 vinninga ásamt Siggu Björgu sem var þó hærri á stigum í þriðjustigaútreikningarumferð. Hildur Berglind hafði það af að verða í 5-6 sæti með 4 vinninga en hún tapaði fyrir stelpunum í 1.-4. sæti fyrir utan Jóhönnu sem hún tefldi ekki við. Svo þetta hlýtur að teljast frábær árangur hjá stelpunum. Það fyndna er að Hallgerður sem var að vinna þetta mót í 5. sinn og Sigga Björg eru þær einu í 6 efstu sætunum sem eru úr Reykjavík. Á næsta ári verða þær báðar komnar í menntó svo það verður sjálfsagt mjög ung Reykjavíkurmær sem hampar titilinum stúlknameistari Reykjavíkur og ætla ég að veðja á Hrund Hauksdóttir sem var fjarri góðu gamni í dag.

Að öðru leiti fékk ég ágætis svefn loksins nú í nótt og er það ekki því að þakka að Þórdísi sé að batna ónei! Heldur var það eiginmaðurinn sem tók vaktina og sinnti vesenisgemsanum svo ég fengi svefn. Svo ég er í þokkalegu standi og á þann draum einan núna að svo megi aftur verða næstu nótt því á morgun verður síðasta rennslið fyrir keppni. Markmið morgundagsins er fyrst og fremst að ná niður í 30 mínútur og helst niður fyrir það. Ég eyddi morgninum í að stúdera tímana mína frá fyrsta rennsli og búin að gera alls konar útfærslur á bætingu. Ég ætla mér að sjálfsögðu stóra hluti en hef í rauninni enga tilfinningu fyrir því hverju ég muni áorka á morgun svo ég ætla að bíða með stóru orðin þar til ég er komin heim aftur á morgun og búin að ná andanum. Þrátt fyrir að kvíða fyrir þá hlakka ég líka til því ég er viss um að bætingin verður góð og ég verði ánægð með árangurinn. Nú ef ekki - þá ætla ég...... ble ble ble Ég ætla bara ekkert að hugsa um það enda veit ég að ég mun standa mig vel eins og alltaf þegar ég geri mitt besta og svo eftir nákvæmlega tvær vikur mun ég gera mitt allra allra allra besta síðan ég gerði mitt allra allra allra besta síðast! - OF flókið líka fyrir mig..... Hey eftir nákvæmlega tvær vikur verð ég einmitt að skála fyrir frábærum árangri og að springa úr monti bara fyrir það eitt að hafa tekið þessa ákvörðun og verið með. 

Ætli það fáist ekki örugglega kampavín á Akureyri? Sennilega best að taka það bara með úr borginni.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Edda Sveinsdóttir

Höfundur

Edda Sveinsdóttir
Edda Sveinsdóttir

Ég er eiginkona og móðir fjögurra stelpna. Ég er líka hjúkka, kokkur, þvottakona, hreingerningarkona, barnapía, baðari og klæðari og síðast en ekki síst einkabílstjóri!

Hef leynda ástríðu af skák og stefni á glæsta framtíð þar sem og í líkamsræktinni

Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • DSC01825
  • DSC01751
  • DSC01829
  • DSC01808
  • DSC01703

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (8.6.): 0
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 2
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 2
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband