WOD 29. ágúst 2008: Nasty Girls

Eftir rólegan hvíldardag er komið að þrusu æfingu. Ég meina HEILL hvíldardagur án hnébeygja og í dag bara 150 kvikindi! Er hægt að hafa það betra? Eftir squat-tarnirnar ættu flestir að vera farnir að ná flottum, djúpum hnébeygjum enda ekki hægt annað en að liðkast í kreppunni. Svo eru það muscle-upsin. Fyrir ykkur nokkur sem eru búin að ná þessari sveiflu þá eru 3x7 bara frekar ísí en við hin sem erum tæknilega ósamhæf og náum þessu ekki þá má skipta þeim út fyrir 3 upphífur og 3 dýfur á hverja eina muscle up - geggjað! Svo er það hin ofurtækniæfingin power clean

"Nasty Girls"

3 rounds for time of:
50 Squats
7 Muscle-ups
135 pound Hang power cleans, 10 reps (kk 60kg og kvk 40kg)

Annars áttum við skemmtilegt opið hús í gær þar sem var vel tekið á! Fengum bootcamp fólk sem stóð sig vil í púlinu og fékk að svitna svolítið.

Á morgun eru svo CrossFit leikarnir milli 10-14 en það ætti þó ekki að taka nema um 2 klst á hvern keppanda. Síðast þegar ég vissi voru milli 15-16 keppendur skráðir til leiks svo þetta á eftir að verða mjög spennandi keppni. Enn sem komið er eru fleiri karlar skráðir en amk 5 konur ætla að taka þátt. Stelpur! Drífa sig í strigaskóna og taka þátt.....

Sunnudaginn verður svo opið hús í Sporthúsinu og við Leifur verðum á staðnum frá kl. 11 og tökum vel á móti gestum, bæði nýjum og þeim sem eru í Sporthúsinu. Hlökkum til að sjá ykkur!!!

Svo erum við búin að taka myndir af bolta uppsetum sem ég ætla að setja inn á workoutsíðuna í dag.

Föstudagskveðja,
Eddan


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Ég klikkaði á tímanum,  íþróttahúsið fullt af unglingum sem fóru í taugarnar á mér. En ég tók 21 upphífingu og 21 dýfu í staðinn fyrir 7 muscel up. 

Svo hljóp ég 5 km eftir æfinguna til að losa mig við pirringinn.  

Dandý (IP-tala skráð) 29.8.2008 kl. 11:08

2 identicon

Þú er snillingur! Hlaup eru sjálfsagt besta leiðin gegn pirring!

Edda (IP-tala skráð) 29.8.2008 kl. 12:00

3 identicon

19:45 - skemmtilegur dagur.  tók 21 Upphífingar og dýfur í staðinn fyrir 7 muscle ups.

Heiðar (IP-tala skráð) 29.8.2008 kl. 13:37

4 identicon

Náði fyrsta muscle-upinu mínu í dag, þannig að það var stór dagur. Er annars frekar ónýtur í bakinu ennþá eftir að ég tognaði fyrir svona 2 vikum síðan þannig að ég býst ekki við neinum svakalegum árangri á mótinu á morgun.

Gummi (IP-tala skráð) 29.8.2008 kl. 14:32

5 identicon

var að horfa á video með þessari æfingu hang  power cleans og sé þar að ég gerði þetta eitthvað skrítið.  Bætti óvart við auakaæfingu en úr þvi það drap mig ekki þá hlýtur að að styrkja mig.

Dandý (IP-tala skráð) 29.8.2008 kl. 15:07

6 identicon

17:14 Ég tók upphýfingar með auka þyngd og dýfur í staðinn fyrir muscle ups (mig vantaði bara hringi til þess að reyna ná því en átti ekki von á miklu). 

Kobbi (IP-tala skráð) 29.8.2008 kl. 15:30

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Edda Sveinsdóttir

Höfundur

Edda Sveinsdóttir
Edda Sveinsdóttir

Ég er eiginkona og móðir fjögurra stelpna. Ég er líka hjúkka, kokkur, þvottakona, hreingerningarkona, barnapía, baðari og klæðari og síðast en ekki síst einkabílstjóri!

Hef leynda ástríðu af skák og stefni á glæsta framtíð þar sem og í líkamsræktinni

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Nýjustu myndir

  • DSC01825
  • DSC01751
  • DSC01829
  • DSC01808
  • DSC01703

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (29.4.): 6
  • Sl. sólarhring: 9
  • Sl. viku: 17
  • Frá upphafi: 784

Annað

  • Innlit í dag: 6
  • Innlit sl. viku: 17
  • Gestir í dag: 6
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband