Heimilisþrif í nýju ljósi

Þá er æfing dagsins búin og ég líka! Það er alveg ljóst að heimilið rekur lestina þessa dagana því eftir æfingarnar sem eru á planinu á þessum síðustu vikum fyrir keppni þá er ekkert eftir nema smá orka til þess að lyfta skeið (svo ég nærist eitthvað smá) og svo þarf ég bara að pína mig til þess að geta sinnt dætrunum. Ég reyni að æfa fimm daga vikunnar og næ því nú oftast en ef vel á að vera þá verð ég að bæta inn eftirfarandi æfingu: 

A) Upphitun: þrif á tveimur baðherbergjum

B)
1. Taka saman dót í herbergi 1
2. Ryksuga herbergið
3. Þurrka af hillum, borðum og gluggum í herberginu
4. Skúra svo yfir gólfið

C) Teygja svo vel meðan gengið er frá áhöldum (ryksugu, tusku og þess háttar!)

Þetta er gert í 5 lotum þar sem herbergin eru fimm og að sjálfsögðu í tímatöku.
Stofan, borðstofan og eldhúsið eru svo gerð í sérstakri refsilotu ef ég næ hinu ekki innan 60 mínútna! Svo þetta geti orðið þarf maður helst að vera barnlaus og eiga góðar græjur, bæði til að þrífa með og til þess að spila góða tónlist Whistling

Annars er þetta er æfing sem ég þyrfti að ná amk aðra hverja viku. Svo er það dagleg heimilisstörf eins og þvottavélin (þe. þessar 3-4 sem fara í gang á dag), eldamennska og frágangur og svo þetta nauðsynlega eins og að halda húsinu í horfinu svo ég missi ekki vitið. Börnin þurfa sitt og eiginmaðurinn sitt þannig að ljóst er að ég þarf að nálgast eitthvað extra Smile  Annars er svo hrikalega stutt eftir að ég get bara ekki gefið neitt eftir. Ég er amk farin að sjá fram á að bæta tímann minn mun meira og því orðin afar spennt. Æfingin í morgun tók vel á þolið enda hef ég aldrei á lífsleiðinni hlaupið jafnlanga vegalengd í einum rykk. Jafnvel ekki þótt ég hafi trítlað verzló-háaleitishringinn í fjögur ár!

1. Hlaup 5km í 1% halla á nýju brettunum (og ég lifði það af...)
2. 200 uppstig með 5kg í hvorri hendi (planið var víst 2,5 kg. en ég tók bara ekki eftir því og las 5kg)
3. 50 kviðæfingar - Reynisæfingar á bolta og set hendur í gólf fyrir aftan mig sitt á hvað (þarna breytti ég til svo ég gæti hlíft öxlinni en skv. plani átti að hanga í lykkjum og setja hné í olnboga)
4. Teygjur og skríða heim....

Komst í gegnum æfinguna en gleymdi að tímataka heildina. Hlaupin voru í 45,5 mín en síðast fór ég 3,550 á 30 mínútum.
Því miður eru heimilisstörf næst á dagskrá þótt ég gæti óneitanlega legið í leti fram að kvöldmat!

 


Ógleði á æfingu !!!!!!!

Nú þegar Þórdís er öll að verða hin sprækasta þá er ekkert sem heitir annað en að mæta í Sporthúsið. Það var augljóst að mín vara saknað enda undruðust margir um fjarvist mína þrátt fyrir að einungis var um tvo virka daga að ræða!! Ég var ekkert í megafútti þegar ég mætti en að sjálfsögðu skorti ekki upp á viljan. Eitthvað er ég að visna sökum stöðu minnar í tíðahringnum en ef ekkert er gert í því mun það hafa áhrif á frammistöðu mína í keppninni því hún verður víst á svipuðum tíma í næsta mánuði. Þar sem ég hef magnaða þekkingu á lyfjamálum er ég að sjálfsögðu búin að redda mér afurðum til þess að hafa áhrif á þennan óhjákvæmilega hring kvenlíkamans. Ég verð bara að þrauka tíðahringsslenið í þessum mánuði en mun vonandi komast hjá því í þeim næsta - amk ef ég held rétt á spöðunum Wizard

Það er óhætt að segja að Reynir hafi brosað út að eyrum þegar hann kom auga á frúnna sem hafði reyndar skoppað á hlaupabrettið í 5 mínútur til upphitunar. Hvort þetta bros var vegna þess hve mikið hann hafði saknað mín síðan við hittumst síðast fyrir viku síðan skal ekki sagt, en líklegra þykir mér þó að í huga hans hafi púkaskrímslið komið upp og milljón kvikindislegar æfingar Devil Ég byrjaði að sjálfsögðu að hrósa sjálfri mér fyrir vasklega frammistöðu sl. föstudag og fékk góðar undirtektir. Svo spurði hann mig hvað ég vildi helst fókusera á í dag og ég varð fljót til enda var ég aðeins búin að pæla þetta út. Vorum við því sammála um æfingarnar sem voru:

1. 400 m hlaup í 10% halla
2. 50 uppsetur (olnbogar í hné)
3. 50 uppstig með 7,5 kg. í hvorri hendi
 í fjórar lotur og tímatöku.

Þetta er sama rennsli og ég tók fyrir ca 3 vikum en þá var hlaupabrettið í 1% halla og ég ekki á síðasta snúning í tíðarhringnum! Ég bætti mig um rétt tæpar 3 mínútur en get örugglega gert betur - auk þess sem hallinn var orðin að brekku!
Þolið er enn minn veikasti hlekkur sérstaklega í brekkunni en ég held ótrauð áfram og mun gera það fram á síðasta dag. Þessi æfing var mjög erfið og er ég rétt að ná andanum núna tæpum tveimur tímum seinna. Auk þess sem ógleði gerði óneitanlega vart við sig en ég held að ég hafi verið í of miklu vatnsþambi áður en ég byrjaði Whistling. En hvað með það? Ef ógleði á æfingu er fyrirstaða þá er ekkert annað en að ælaSick! Nú eða hægja kannski örlítið á sér og jafna sigLoL

Annars var yndislegt að fara með Hildi í Ráðhúsið á mánudagskvöldið og hitta alla stórmeistarana. Hún átti skemmtilegt spjall við Friðrik Ólafsson stórmeistara sem leyfði henni að velja leikinn sem hún lék fyrir hann í Minningarmóti um  Bobby Fischer. Hann spurði hvað henni fyndist besta að leika fyrst. Hún svaraði e4 og hann sagði að það væri góður leikur og hún mætti ráða sjálf hverju hún léki. Dívan birtist á báðum sjónvarpsstöðvum og í blöðunum daginn eftir. Óhætt að segja að hennar úrklippubók sé á góðri leið með að verða þykk og flott eins og bókin hennar Jóhönnu. Í dag ætlum við svo að kíkja við á Gerðarsafni og skoða myndina af henni og Geir Haarde úr skákinni góðu í nóvember Smile

Nú er ég búin að skola niður einum góðum próteinsjeik með fullt af haframjöli, All bran, ávöxtum ofl. og líður bara ljómandi vel. Ætla því samviskusamlega að hlýða orðum hettumannsins (Reynis) og liggja í leti þar til Þórdís vaknar og jafna mig.......


Íslandsmót grunnskólasveita 1.-7. bekkur 2008

IMG_6814Um helgina fór fram Íslandsmót grunnskólasveita 1.-7. bekkjar 2008. Sautján lið mættu til leiks, þar af mættu þrjú lið úr grunnskólanum í Mýrdalshrepp, lið frá Glerárskóla Akureyri og grunnskóla Vestmannaeyja. Salaskóli, Hólabrekkuskóli og Hjallaskóli áttu allir þrjú lið í keppninni og Rimaskóli tvö lið. Krakkarnir voru gríðalega áhugasöm og spræk en næðið var þó mjög gott á skákstað þrátt fyrir ungan aldur margra! Lið eyjamanna, Rimaskóla, Salaskóla og Glerárskóla börðust um efstu sætin frá upphafi móts.

1. sæti Grunnskóli Vestmannaeyja með 30 vinninga (vann eftir einvígi)
2. sæti Rimaskóli A sveit með 30 vinninga
3. sæti Salaskóli A sveit með 26,5 vinningIMG_6798

Hildur Berglind var á þriðja borði í A sveit Salaskóla og stóð hún sig bara nokkuð vel miðað við að vera yngst í sveitinni (og reyndar yngst af keppendum í efstu sveitunum) hún náði 5 af 9 vinningum.

Þar sem móðirin tók að sér aðstoðarskákstjórn féll það í hennar skaut að afhenda dótturinni ásamt öllum hinum verðlaunahöfunum metalíur og viðurkenningaskjöl. Alltaf gaman að fá að krýna sín eigin börn Grin

 

IMG_6782Eiginmaðurinn átti afmæli á föstudaginn og þar sem ég er besta eiginkona í heimi þá uppfyllti ég að sjálfsögðu heitustu ósk hans um afmælisgjöf. Draumurinn var vélsleði með bleikri slaufu og einhver fræðirit um veiðar villifugla og þess háttar. Að sjálfsögðu varð ég við öllum óskum og gerði gott betur þegar ég bætti við bók um Land Rover InLove

 

Af meistaramóti Salaskóla er svo það að frétta að Hildur Berglind vann í flokki 1.-4. bekk og Jóhanna  Björg tapaði í morgun í einvígi við Pál Andrason þegar hún féll á tíma í þriðju skákinni þeirra. Hún varð því í öðru sæti í 8.-10. bekk og sem Skákmeistari Salaskóla. Hún hefur þó unnið þann titil þrisvar sinnum áður.

Í dag mun Hildur Berglind leika fyrsta leik fyrir Friðrik Ólafsson í Ráðhúsinu en Reykjavík Open mun flytjast þangað í dag auk þess sem fleiri munu tefla og skilst mér að stórmeistarinn Spassky muni sinna skákstjórn.

Ekki hefur verið mikið og æfingar þessa helgina og sit ég enn heima þar sem örverpið fór í nefkirtlatöku í morgun. Allt gekk að óskum og erum við bara í rólegheitum að jafna okkur eftir aðgerðina. Líklegt er að ég verði heima á morgun líka en aldrei að vita nema ég geti samið við aðra fjölskyldumeðlimi svo ég komist kannski bara til að hlaupa Whistling


Fimm mínútur farnar

IMG_6715Þessi vika hefur verið nokkuð góð. Ég hef mætt í ræktina á hverjum degi síðan við komum heim frá Akureyri með viðkomu á Siglufirði (eða norðurpólnum). Á þriðjudaginn tók ég afar öfluga æfingu eins og ég hef skýrt frá og er óhætt að segja að lærin á mér séu enn að súpa seiðið af þeirri athöfn. Á miðvikudag stakk Reynir hettumaður upp á róðri og þar sem ég var í tímaþröng tók ég 4 km á 20 mínútum og verð að viðurkenna að þetta var drepleiðinlegt! Um kvöldið var ég farin að fá enn meiri óþægindi í læri og rassinn farin að segja til sín líka. Hvar endar þetta? Í gær ákvað ég að taka þolið og hélt á brettið þar sem markmiðið var að hlaupa í 30 mínútur og taka kviðæfingar eftir það. Interval hlaupaæfing þar sem ég tók 4 all hressilega spretti á level 11,5 í 2 mínútur hvert sinn og hljóp hægar eða gekk rösklega þess á milli. Þarna var ég óneitanlega að reyna mig meira en ég hef gert áður en hljóp þó ekki nema 3,550 km. Lengsta hlaup sem ég hef hlaupið en ekki gleyma því að lappirnar mínar eru líklega ekki alveg jafnlangar og þínar FootinMouth

Í morgun höfðum við Ingunn mælt okkur mót kl. 10 þar sem við ætluðum að taka þrekmeistarahringinn með þyngri þyngdir og lengri vegalengdir en í sjálfri keppninni. Eitthvað stóð vekjaraklukkan hennar Ingunnar á sér svo ég var bara ein á svæðinu. Var eitthvað að ræflast á hjólinu og ákvað að setja klukkuna í gang og taka tímann. Ég verð nú eiginlega að taka það fram að þetta er sennilega gleðilegasta æfing vikunnar því þarna var ég í brautinni, með U2 í eyrunum og ekkert að keyra á límingunum enda enn með hóflegar harðsperrur sem ekkert virðast ætla að gefa eftir. Einhver taugaklemma í hægri öxlinni gerði vart við sig í upphituninni og vonast ég til að hún jafni sig yfir helgina. Nú eftir hjólið og róðurinn sem ég tók á meðalhraða var niðurtogið sem ég tók heldur ekkert of hratt þar sem klemman sagði til sín. Fótalyfturnar voru frekar slappar eða reyndar slappari en nokkru sinni áður en svo kom hitt sem mér hefur áður þótt helvíti. 30 armbeygjur eins og ekkert var! Uppstigin voru reyndar trufluð eftir 9 stig þar sem frumburðurinn hringdi í mig af Meistaramóti Salaskóla og vildi halda mér upplýstri um gang mála þeirra systra! En svo var bara klárað í einni bunu með örstuttu hléi eftir 66 stig. Mun léttara en alltaf áður! Skaust ég yfir salinn og fann til kassann og dýnu og byrjaði kviðæfingarnar/uppseturnar og hvað haldið þið?????? 50 uppsetur alla leið, 4 djúpir andadrættir og síðustu 10 kláraðar alla leið. Þetta er ekki kraftaverk heldur afleiðing þrotlausra æfinga undanfarið. Ég sem sagt get augljóstlega tekið þátt í mótinu. Gleðin var svo yfirþyrmandi að ég hélt aftur af sársaukanum þegar ég tók axlarpressuna á mettíma og fór svo í brekkuhlaupið sem virðist vera minn helsti veikleiki. Meira að segja missti aðeins móðinn og fór að svima svolítið svo ég fipaðist á brettinu en hugsaði svo til hvatningar hennar Guðrúnar úr fyrsta rennslinu og kláraði dæmið. Réðst á ungan mann við bekkpressuna, skipti um lóð og fékk hann til að vera við bekkinn. Kláraði allar 40 lyfturnar og nýr tími 33 mínútur sléttar. 5,32 mín niður og var ekki búin að undirbúa neitt svo ég varð að stilla öll tæki á þessum tíma líka. Tóm hamingja.

Nú verður hvílt um helgina þar sem ég verð á Íslansmóti grunnskólasveita 1. - 7. bekkur í skák enda Hildur Berglind á 3. borði í A-sveit. Af meistaramóti Salaskóla í dag er það að frétta að Hildur Berglind vann í flokki 1.-4. bekkjar og Jóhanna og Palli eru jöfn í flokki 8. - 10. bekkjar og munu tefla einvíki um Salaskólameistaratitilinn á mánudaginn. Það er einstaklega ánægjulegt að Hildur hafi unnið sinn flokk því Jóhanna er sú fyrsta sem vann þann farandsbikar þegar hún var í 4. bekk og fyrsta meistaramótið var haldið. Nú eru þær báðar systurnar komnar á bikarinn!


Fyrirgefðu fröken en við erum að loka fjallinu í dag!

Jebb ég er komin aftur eftir 5 daga dvöl í skíðaparadís norðurlandsins. Eftir að hafa eitt heilum degi í að pakka niður fyrir þessa skíðaferð komum við að Hrafnagilsstrætinu rétt um kl. 01:30 á aðfaranótt fimmtudags. Það tók nú ekki langan tíma að koma liðinu á sína staði svo flestir náðu ágætum svefn þótt örverpin séu vissulega morgunhanar. Við fórum upp í Hlíðarfjall rétt eftir hádegi í glampandi sól og blíðviðri. Fáir í fjallinu svo við, sem ætluðum bara að láta millistykkin á skíði á þessum fyrsta degi, vorum fljótlega búin að festa á okkur búnaðinn og komin af stað. Þess má geta að ég hef ekki snert skíðin mín síðan 2002 þegar ég var á sama stað og Stína tengdó kenndi mér svo ágætlega að skíða. Eitthvað var nú búnaðurinn slappur fyrir utan skíðin sem voru þó nýjust (2001). Ég var í úlpu af frumburðinum en buxunum af gamla gallanum sem var keyptur vel fyrir þremur börnum síðan! Millistykkin svifu upp og niður barnabrekkuna (á töfrateppinu) og stóðu sig frábærlega og fljótlega kom að því að fröken Hildur Berglind vildi komast í diskinn. Það er skemmst frá því að segja að hún skíðaði frábærlega og þurfti að draga hana úr brekkunum á hverjum degi. Elín Edda sem var í sitt annað skipti að stíga á skíðin nú fjögurra ára gömul, var orðin hörkufín eftir ferðina og farin að renna sér niður úr diskalyftunni - með fylgd.

Frú Edda var pínulítið stressuð þegar hún drógst upp með diskalyftunni og þjáðist verulega í skónum. Þegar upp var komið var lítið annað í stöðunni en að láta sig gossa niður. Andskoti hrikalega gaman. Komst heil niður og það bara ágætlega. Í hverri ferð var ég svo upptekin að rifja upp tæknina að ég næstum því gleymdi sársaukanum í helv.... skónum sem bókstaflega voru að drepa mig. Það var alsæl Edda sem hrökklaðist inn í bílinn eftir fjóra tíma í fjallinu og fann ekkert fyrir því. Örverpið svaf líka í bílnum fjóra tíma á hverjum degi sem við skíðuðum og skiptumst við elstu þrjú á að fylgjast með henni og vera með Elínu en hægt var að leggja bílnum rétt við barnabrekkuna. Ég sem bjóst við því að skíða lítið og þurfa að fara með örverpið á líkamsræktarstöð til þess að gera sem mest úr helginni tók Hlíðarfjall með stæl og það eina sem rann í gegnum huga minn var hættan á að fótbrotna og geta ekki tekið þátt í Þrekmeistaranum - þvílíkt rugl!! Auðvitað fótbrotna ég ekki neitt og sveif með fjarkanum hátt upp að strýtulyftunni og skíðaði örugg og þræl fótasterk niður. Á föstudagskvöldið komu svo tengdaforeldrarnir ásamt Gunna og Jón Friðrik og stefnan tekin á Greifann eins og vant er. Laugardagsmorgun fór í undirbúning og heimstókn í Skíðaþjónustuna þar sem eiginmanninum fannst ég standa mig svo vel að ég ætti skilið að fá ný skíðagleraugu. Eftir að hafa mátað öll gleraugun í búðinni var ljóst að dívan varð að fá þau flottustu og að sjálfsögðu dýrustu gleraugun á Akureyri. Lúkkið bara verður að vera í lagi! Þónokkur snjóblinda var í fjallinu á laugardaginn og þá komu nýju brillurnar að notum og hver var flottust?

Það er líka hefð í þessari árlegu fjölskylduferð að grilla nautalund með bernaise á laugardagskvöldinu og á því varð engin undantekning! Klikkar aldrei! Eftir kvöldmatinn var ákveðið að bruna á sunnudegi til Dalvíkur og prufa skíðasvæðið þar. Þegar þangað var komið byrjuðum við á því að skoða "hús" sem einhverntímann var á tveimur hæðum en mátti muna sinn fífil fegurri. Draumur skíðafólksins er að eignast hús í skíðaparadísinni og því var sá möguleiki kannaður. Eitt er víst að það þurfti að taka út skíðasvæðið sem leit nú alls ekkert spennandi út og bjóst ég bara við að vera í barnahorninu þann daginn. Eftir um það bil klukkustund renndi Stína tengdó sér að mér og sagði: þú verður að prufa - þú átt eftir að fíla þetta í ræmur. Færið er frábært en það er aðeins bratt þarna efst. Það var ekki annað að gera en að hlýða tengdó -eða hvað? Ég var ekki lengi að skipta um hlutverk (enda þarf hún að æfa sig með dætur mínar fyrir apríl....) og komin í lyftuna innan fárra mínútna. Egill tengdapabbi kom á eftir mér enda frábær skíðamaður sem hafði það hlutverk að lóðsa mig niður þessa nýju brekku. Mikið hrikalega var efsti hlutinn ógeð brattur Blush. Við svifum þetta rólega í fyrstu tveimur ferðunum (reyndar frekar há brekka) og síðan var ekki aftur snúið. Þetta var geðveikt. Þegar klukkan var farin að nálgast fimm sá ég að það var eitthvað orðið fámennt í fjallinu fyrir utan okkar tíumanna hóp. Svo fór að síast úr honum líka. Þar kom að því að ég var orðin ein eftir í fjallinu og gat ekki stoppað!!! Fyrirgefðu fröken en við erum að loka. E: Já en má ég fara eina ferð í viðbót??? Plís?? Ég hef ekki skíðað í fimm ár. Ég er alltaf ólétt eða með barn á brjósti..... OK en bara eina ferð í viðbót og svo lokaði brekkan Grin.

Ég kom sjálfri mér mest á óvart hvað ég var orðin virkilega góð á skíðunum, fann ekkert fyrir neinu á kvöldin og greinilegt að ég hafði nægan styrk í aðra fjóra daga á skíðum.

Þrekmeistari ? JÁ TAKK.  Ég mun taka þátt í Þrekmeistarnum og leyfa öðrum að fara með dæturnar á norðurlandamótið í skák 18. -20. apríl. Í morgun mætti ég á æfingu þar sem var hitað vel upp og svo var prógrammið:
400 m. hlaup í 10% halla
10 súper froskahopp með armbeygjum (brjóst í gólfið)
20 hopp jafnfætis upp á tvo palla
30 uppstig með 5kg lóð í hvorri hendi
40 hnébeygur
4 lotur í tímatöku!

Var ansi móð í lokin en lauk þessu með stakri prýði. Er ég masókisti Hildur? Já sennilega.....


Ef ég væri ólétt....

Nú er ekkert gefið eftir og hver æfingin á fætur annarrar er tekin með trompi. Lærin hafa titrað sl. daga og hefur stiginn milli hæða á mínu eigin heimili verið hindrun sem um munar! Harðsperrur frá helv..... einkenna upplifun á eigin líkama. Eftir all svakalega æfingu í morgun sem í heild urður 1600m hlaup, 200 uppstig með 7,5kg og 200 magauppsetur sem gengu geggjað vel (í fjórum lotum) þá er ég bókstaflega örmagna! Kom hingað heim eftir smá snatt og nærðist. Svo komst ég ekki lengra en í "aumingjastólinn" sem er by the way til söluGrin. Þetta er jú stóllinn sem ég eyddi síðustu vikum meðgöngu fjögur í - jebb allan sólarhringinn! Þegar ég lá þarna eins og sannur aumingi fór ég að hugsa upphátt: Ef ég væri ólétt núna og komin svona 30 vikur þá myndu þið allar stökkva til við hverja stunu og færa mér ískalt kók með klaka og eitthvað rosalega gott að borða. Í þessum upphátt hugsuðu orðum stundi ég undan fótum sem ég finn ekki lengur fyrir og lungum sem minna helst á berklasjúkling - sem er náttúrulega ósanngjarnt þar sem ég hef aldrei snert nokkuð nikótín um ævina.... Þegar ég var í þessum ólétta heimi hváði frumburðurinn sem sat við borðstofuborðið og nam stærðfræði: Ef þú værir ólétt sætir þú upprétt í "aumingjastólnum" (tek fram að ég snéri á hvolfi í tilraun til þess að fá blóð í heilann) með lopapeysu á prjónunum og myndir ekkert kvarta enda hefðir þú ekki farið í leikfimi í morgun né hina dagana - að minnsta kosti ekki svona æfingu! Só trú!!! Ég var víst tekin út af dagskrá við 26 vikur, skikkuð í aumingjastólinn og fann fyrir litlu eftir það.....

Nei nú er bara harkan og ég í geðveikt góðum gír. Tilbúin til þess að takast á við þrekmeistarakvikindið með stæl. Er hins vegar nógu skynsöm til þess að hvíla á morgun og njóta þess að borða örlítin ís með dætrunum áður en akstursrallið hefst eftir 15 mínútur.....


...og svo var hlaupið.

Í gær á sjálfan konudaginn var skoppað á fætur kl. 9 enda fór bóndinn framúr og horfði á Dóru og Latabæ með litlu strumpunum! Var komin í Sporthúsið rétt rúmlega 10 og þar var hópurinn í góðum gír að fylgja fyrirmælum Reynis hettumanns. Við tókum vel á því í nýju upphitunaræfingunum sem mörgum þætti vera allt annað en upphitunaræfingar. Síðan vorum rekinn inn í stóra salinn þar sem við púluðum stanslaust í 20 mínútur í sömu þremur æfingunum sem saman stóðu af magaæfingu, armbeygjum og hnébeygjum. Þetta var geðveikt kikk sem fékk mig til að nötra bókstaflega. Þolið er minn helsti veikleiki svo ég varð nokkuð móð við þetta en kom sjálfri mér svo hrikalega á óvart, þá sérstaklega í magaæfingunum að ég sé fram á að ná þessum 60 uppsetum áður en að vikan er liðin.

Þegar heim var komið tók við smá undirbúningur fyrir afmælisbrönsinn hennar Jóhönnu sem varð 15 ára í gær. Fengum fjölskylduna í notalegt boð þar sem möguleikar á Þrekameistaraferðinni voru ræddir. Það er ljóst að í fyrsta skipti á ævinni líður mér þannig að ég er ekki tilbúin til þess að fórna öllu mínu fyrir börnin mín. Ég geri mér líka fullkomlega grein fyrir því að aðrir geta svo sannarlega sinnt þeim ljómandi vel og eru okkar nánustu svo sannarlega fullkomlega treystandi til þess að fylgja elstu dætrunum mínum til Noregs í nokkra daga. Jebb þátttaka mín er ekki vandamál heldur verkefni til þess að leysa!!!

Í morgun mætti ég galvösk á æfingu og arka beint í fangið á hinum eina og sanna. Ég innti hann eftir hugmyndum hvernig best væri að haga hverri æfingu. Það stóð ekki á svarinu! Ég segi þér það bara í hvert skipti sem þú mætir. Það er meira spennandi að hafa ekki hugmynd um hvað þú átt að gera fyrr en þú ert komin. Ég sem gerði mér ekki grein fyrir því að hann ætlaði að eyða tíma í mig á hverjum degi (ég er líkla bara svona heppin að vera alltaf að æfa á þeim tímum sem hann er á staðnum) brosti bara út að eyrum og sagði JÁ! Byrjaði á upphýfingum og þessum frábæru þrekupphitunaræfingum og svo var hlaupið. 800 m. hlaupið og stoppað í tvær mínútur. Hljóp 4x800 metra og hvíldi 3x2 mínútur. Í fyrsta lagi hef ég aldrei hlaupið mikið yfir 2 km svo þessir 3,2 km voru framför. Í öðru lagi þá hljóp ég mest allan tímann í öll skiptin og fór meira að segja upp í hraða 10 sem er meira en nokkru sinni áður. Hlaupatíminn minn var 24,51 sem telst víst ekkert spes en ég veit að þetta er betra en ég hef gert áður og ég mun gera betur næst. Vá hvað ég á eftir að standa mig vel í keppninni! Ég verð kannski að fara að endurskoða markmiðin.....

 


Óvænt úrslit í undankeppni stúlkna fyrir NM í Osló 2008

Nú eru úrslit komin í keppni um sæti á norðurlandamóti stúlkna u-12 ára í Osló sem fram fer helgina 17.-20. apríl nk. Fjórar skvísur kepptu um sætið, þær Hildur Berglind Jóhannsdóttir 1999, Hulda Rún Finnbogadóttir 1996, Sóley Lind Pálsdóttir 1999 og Sonja María Friðriksdóttir 1998. Keppt var í Faxafeninu í dag og tefldar 3 umferðir eða allar við alla og 45 mínútur á mann.

1. umferð: Sonja 0 - 1 Hildur,  Hulda Rún 1 - 0  Sóley
2. umferð: Hildur 1 - 0 Sóley,  Sonja 1/2 - 1/2 Hulda Rún
Þarna voru frekar óvænt úrslit þegar Sonja nær jafntefli á móti Huldu sem hefur þótt sigurstrangleg. Sonja tefldi vel og Hulda varðist ágætlega en augljóst var að mikil spenna var í þátttakendum. Fyrir lokaumferðina kom Guðfríður Lilja færandi hendi með djús, páskaegg og kökur sem gladdi stelpurnar en Hildur sem hefur tamið sér að borða ekki gotterí meðan hún er að tefla, stóðst freistingarnar og fékk sér aðeins topp og brauð!

Ljóst var að Hildur og Hulda sem áttu að tefla saman í síðustu umferð voru báðar mjög spenntar enda dugði Hildi að fá jafntefli til þess að sigra!

3. umferð: Sóley 0-1 Sonja og Hulda 1/2 - 1/2 Hildur.  Þarna voru úrslitin komin en þær tefldu fram á síðasta mann eða þar til tveir einmanna kóngar stóðu á borðinu í hvorum lit! Hildur Berglind Jóhannsdóttir er annar fulltrúi Íslands á norðurlandamóti stúlkna undir 12 ára 2008. Þetta var óneitanlega spennandi og skemmtilegur dagur í Faxafeninu og ljóst að móðirin er afar stolt af sinni skottu. Hins vegar mun Hulda Rún fara ásamt sinni systur á Norðulandamótið á eigin vegum. 

1. Hildur Berglind 2,5 (af 3) vinningar
2. Hulda Rún        2
3. Sonja María     1,5
4. Sóley Lind        0

Nú er móðirin að sjálfsögðu í smá kvíðakasti því Þrekmeistarinn er í húfi. En eftir gleði gærdagsins er alveg ljóst að æfingar munu halda áfram hvort sem keppt verður í apríl eða nóvember!! Ætli það sé mikið mál að flytja þrekmeistarann áfram um eina helgi???????


Leitin af Pollýönnu

Hef haft það sterklega á tilfinningunni undanfarið að Pollýana hafi yfirgefið mig. Vona innilega að það sé algjörlega tímabundið því hún hefur verið besti vinur minn frá unga aldri. Lífið er svo miklu betra þegar hún er mér við hlið eins og hún hefur gert. Hvar skildi hún vera? Hefur einhver rekist á hana? Týnd! Vissulega hlýtur svo að vera þar sem ég hef ekki verið svona fúl eða neikvæð um langa hríð. Ég er í raun orðin verulega pirruð á eigin pirring!! Á æfingunni í gærmorgun, sem var reyndar alveg ágæt, flaug í huga mér hvort ég hafi ómeðvitað lagt Pollýönnu til hliðar vegna óvissunar um það hvort ég geti tekið þátt í Þrekmeistaranum vegna möguleika Hildar á að ná sæti á norðurlandamótið í Osló sem er jú einmitt sömu helgi. Augljóslega þarf ég að fylga henni þar sem ekki er hægt að setja þá ábyrgð á frumburðinn sem á jú töluvert meiri möguleika á þessu móti en Hildur færi í flokk 12 ára og yngri.

Kvöldinu eyddum við hjónin með nágrönnum okkar sem höfðu boðið okkur til hátíðarkvöldverðarfundar hjá KFUM og KFUK. Algjörlega yndisleg kvöldstund í góðum félagsskap. Ýmsar ræður voru fluttar og flutti séra Guðlaug hugvekju sem fékk mig til að líta í minn eigin "garð". Það er jú viðhorfið sem hefur verið að hrjá mig og það veit ég en það er langur vegur milli þess sem maður veit og þess sem maður gerir. Ég fór nokkuð sátt í svefnin og svaf ljómandi vel. Var mætt rúmlega níu í ræktina og bara nokkuð jákvæð og orkumikil. Tók prógramið að mestu leyti og var töluvert einbeitt á hlaupabrettinu í upphituninni. Ég var að sniglast við curlið með vel hlaðna stöngina þegar Reynir, þjálfari Annasar kallaði á mig og innti mig eftir magaæfingunum. Sagðist hafa séð mig gera þær í vikunni og hvernig mér líkaði. Áður en ég vissi af var hann búin kótsa mig í magaæfingum og búin að reka mig upp á pall þar sem hann hvatti mig til upphýfinga. Samtal okkar var eitthvað á þessa leið: E: sko ég hef ekki reynt þetta áður. R: og hvað með það? E: ég er ekki viss um að geta þetta, ég ble ble ble ble....... R: Þú talar bara um hvað þú er léleg í hinu og þessu og..... E: já en....  R: Þetta eru bara afsakanir, ætlaru að væla eða reyna? E: huu, já.   Svo teygði ég mig í stöngina svo ég rétt snerti pallinn með tánum. Reyndi með engum árangri að hýfa mig upp.  E: ég get þetta ekki. R: Nei ég sá strax að þú myndir ekki geta gert eina. Ég sá það í augunum á þér! Jebb það var eins og við manninn mælt. Hann sparkaði í rassinn á mér og ögraði mér þannig að Pollýana hrökk upp í heila aftur og ég kvæsti til baka: Stattu ekki bara, sæktu annan pall svo ég nái upp. Þá glotti þjálfarinn og sagði þarna er það sem ég var að reyna ná fram og benti ítrekað á kollinn á sér Devil. Ég þeyttist upp eins og fjandinn væri á hælum mér með þokkalegum árangri W00t. Reynir snéri sér aftur að fórnalambinu sem var í tíma hjá honum og ég arkaði á hlaupabrettið. Jebb ég er komin aftur. Ég píndi mig mun meira og af meiri gleði á brettinu en ég hef gert sl. þrjár vikur. Varð litið öðru hverju út í hornið til Reynis og hljóp aðeins lengra og aðeins hraðar og aðeins meira áður en ég hægði á mér eða hætti að lokum. Já og þarna halda margir að æfingunni hafi verið lokið enda rúmur klukkutími liðinn. En aldeilis ekki! Þegar ég var við það að ganga út kom í ljós að Reynir var orðin laus og hljóp á eftir mér og spurði hvort við ættum ekki aðeins að kíkja á æfingarnar. Finna helstu veikleikana og vinna með þá. Ég hikaði ekki í sekúndu og treysti á að Freyja barnagæslukona hefði fullan skilning á þessu! Saman þræddum við salinn og fórum í hverja einustu æfingu og fínpússuðum. Einhversstaðar á miðri leið mætti Hildur stuðningskona nr. 1 í salinn og þá var ég einmitt aftur komin á stöngina og var að gera hnélyftur þar. Hún hafði orð á því að hún sæi í augum mínum eldmóðinn. Það gladdi mig óneitanlega þar sem það er það sem ég hafði glatað!

Reynir er frábær þjálfari sem hikar ekki við að ögra manni og er algjörlega óhræddur við að segja manni hvað maður getur gert betur - sem er jú eina leiðin til þess að geta bætt sig! Klukkan tuttugu mínútur í tólf sagðist hann þurfa að drífa sig og kvaddi ég alsæl, kófsveitt og illa lyktandi fyrir framan barnagæsluna þar sem ég fékk leyfi til þess að þrífa mig áður en ég tæki við örverpinu aftur. Smile

 Um helgina er svö úrslitamótið hennar Hildar Berglindar og á sunnudaginn verður litli frumburðurinn minn 15 ára.IMG_6176


og áfram heldur puðið

Ég er enn að. Enn að hamast á brettinu, hjólinu og öllu hinu. Þolið er eitthvað aðeins að láta á sér standa nokkurn vegin sama hvað ég geri. Meðan ég hleyp með lafandi tunguna eins og örmagna hundsræksni læt ég mér dreyma um kraftaverk og síðustu lyftuna í bekkpressunni þann 19. apríl næst komandi. Ég veit að ég get þetta en er eitthvað óörugg því upplifunin er eins og mér miðið ekkert áfram. Ég er líka búin að komast að því að tíðarhringurinn getur haft veruleg áhrif á frammistöðuna og því mikilvægt að reyna að hliðra til eins og hægt er.

Það má segja að Leifur hafi hitt naglann á höfuðið í gær þegar hann sagði að stundum líði manni eins og kartöflupoka. Vandinn er bara sá að mér hefur fundist ég vera eins og fimm kartöflusekkir í tvær vikur. Kristján segir að ég sé alltof hörð við sjálfa mig! Ég veit ekki. Kannski er ég bara grjótharður kartöflupoki sem þarf ærlega soðningu. Á tíma hjá Rut næsta mánudag og hver veit nema ég mýkist eitthvað til og fari að taka framförum í lungunum Tounge. Maginn hefur látið ógurlega sl. sólarhring eftir að ég tók upp þessar tvær nýju magaæfingar sem Annas kenndi mér í gærmorgun. Þær eru dúndurfínar og gerði ég strax betur í morgun en í gær þrátt fyrir öflugar harðsperrur. Annars get ég ljóstrað því upp hér að harðsperrur í maganum eru þær langbestu því þá er ég alveg viss um að ég hef lagt verulega á mig W00t

Að lokum vil ég vekja athygli á keppni milli fjögurra stúlkna um sæti á norðurlandamót stúlkna (sömu helgi og Þrekmeistarinn). Hildur Berglind, Hulda Rún, Sóley Lind og Sonja munu tefla allar við alla og 45 mínútur á mann. Þetta verður örugglega spennandi og hörð keppni milli stelpnanna sem allar vilja komast á norðurlandamótið. Hvet alla til að kíkja við í sal Skáksambandsins í Faxafeninu a laugardaginn kl. 13 og hvetja mína stelpu áfram Wink - sko af því að ég held með henni þrátt fyrir að það geti kostað mig Þrekmeistaraþátttöku að þessu sinni..... ble ble ble hugsa um það þegar þar að kemur Crying


« Fyrri síða | Næsta síða »

Um bloggið

Edda Sveinsdóttir

Höfundur

Edda Sveinsdóttir
Edda Sveinsdóttir

Ég er eiginkona og móðir fjögurra stelpna. Ég er líka hjúkka, kokkur, þvottakona, hreingerningarkona, barnapía, baðari og klæðari og síðast en ekki síst einkabílstjóri!

Hef leynda ástríðu af skák og stefni á glæsta framtíð þar sem og í líkamsræktinni

Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • DSC01825
  • DSC01751
  • DSC01829
  • DSC01808
  • DSC01703

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (8.6.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 2
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 2
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband